Nú er árið senn á enda og þá er kjörið tækifæri til þess að gefa sér tíma, líta yfir farinn veg og fara yfir árið sem er að líða. Hvernig gekk að fylgja eftir markmiðunum? Hvað gekk vel og hvað hefði mátt fara betur? Hvaða lærdóm getum við dregið af árinu sem er að líða og hvaða minningar og stundir standa upp úr?
Það felst oft mikill lærdómur í því að horfa yfir farinn veg, sýndu þér þó mildi og ekki rífa þig niður fyrir það sem þú gerðir eða gerðir ekki. Það að gera mistök er oft okkar dýrmætasta lexía. Settu fókusinn frekar á vöxt, sjálfsþróun, hvernig þú getur gert betur og orðið betri manneskja.
Hér á eftir eru spurningar sem hægt er að styðjast við þegar farið er yfir árið 2023. Þú getur bæði svarað þessu ein/n i ró og næði eða jafnvel fengið maka, vini eða fjölskyldumeðlimi til þess að skoða þetta með þér. Einnig getur verið skemmtilegt að gera úr þessu leik í kvöld þar sem hver og ein spurning er skrifuð á lítið spjald sem sett er undir diskinn hjá hverjum og einum eða í skál þar sem hver og einn dregur miða og rifja upp eftirminnilega atburði frá árinu sem er að líða.
- Hvaða þrjú orð lýsa árinu sem er að líða best?
- Hvað var það besta sem kom fyrir þig á árinu 2023?
- Hver er eftirminnilegasta minning þín frá árinu 2023?
- Hvað var það skemmtilegasta sem þú gerðir á árinu?
- Hver var þín stærsta áskorun á árinu?
- Hvað kom þér mest á óvart á árinu?
- Hver var stærsta hindrunin á árinu og hvernig brástu við henni?
- Hvaða breyting hefur átt sér stað hjá þér persónulega á árinu?
- Hvað gerðir þú árinu 2023 sem var út fyrir þinn þægindaramma?
- Hvaða markmiðum náðir þú að fylgja eftir?
- Hvaða markmiðum náðir þú ekki að fylgja eftir?
- Hvað getur þú gert öðruvísi á árið 2024 til að ná settum markmiðum?
- Hver var mikilvægasti lærdómurinn á árinu?
- Hvaða manneskja í þínu lífi var þér mikilvægust á árinu?
Tækifærin, hamingjan og vöxtur er handan við hornið ef þú bara vilt það.
Munum að þú skapar þú raunveruleika <3
Hlýjar áramótakveðjur,
Erla & Þóra Hrund
Hvað eru venjur?
Venjur eru litlar ákvarðanir sem þú tekur og gjörðir sem þú framkvæmir daglega. Samkvæmt rannsóknum eru venjur um 40% þess sem .æu gerir alla daga. Það má því segja að líf þitt sé á margan hátt niðurstaðan af venjum þínum. Í hversu góðu formi ertu? Hversu vel gengur þér í lífinu? Hversu hamingjusöm/samur ertu? Svör við þessum spurningum byggja líklega af stórum hluta á þínum daglegu venjum. Það se þú hugsar um og gerir endurtekið ræður því á endandum hver þú ert. Þegar þú lærir að breyta venjum þínum, hvort sem það felst í því aðtaka út óheilbrigðar venjur eða að skapa þér nýjar árangursríkar venjur getur þú séð stórkostlega breytingar á þínu lífi.
Að byrja að skapa sér nýjar venjur:
Það er mikilvægt að ætla sér ekki of mikið í upphafi. Þess vegna mælum við með því að þú byrjir á að velja þér venju sem þú telur að auðvelt verði að koma inní þína daglegu rútínu. Í stað þess að ætla að hugleiða í 20 mínútur á dag, gætiru byrjað á 5 mínútum. Eða í stað þess að taka 50 armbeygjur gætir þú byrjað á 5 á dag. Reyndu að hafa þetta eins viðráðanlegt og kostur er þannig að líkur aukist á að þú náir að fylgja þessari venju alla daga – því það er einmitt lykilinn til þess að festa nýja venju í sessi. Þegar þér hefur gengið vel með þessa nýju venju getur þíu svo smám saman bætt við. Þannig gætir þú til dæmis lengt hugleiðsluna um eina mínútu í hverri viku. Ef 20 mínútna hugleiðsla er loka markmiðið. Með því að gera þetta í litlum skrefum er mun líklegra að þú náir loka markmiðinu. Ef þú reynir strax að byrja á loka markmiðinu er hætt við því að þú gefist upp eftir örfáa daga. Áhugahvöt þín og innblástur mun aukast jafnt og þétt þegar þú finnur að þér er að ganga vel með þær litlu breytingar sem þú ert að gera. Margt smátt gerir eitt stórt og á endanum getur þú séð stórkostlega breytingu á þínu lífi. Einnig getur verið gagnlegt að skipta venjunni upp í tvo eða fleiri hluta yfir daginn. Ef við höldum áfram með dæmið um hugleiðsluna gæti til dæmis verið auðveldara fyrir þig að ná á endanum að hugeiða tvisvar yfir daginn í 10 mínútur í senn í stað þess að gera það einu sinni í 20 mínútur. Lykilatriðið er að sníða venjuna sem best inní þína daglegu rútínu.
Að detta úr takt er eðlilegt:
Það gera allir mistök, afreksíþróttafólk missir stundum úr æfingu, heilsugúrú fær sér stundum kökusneið og stundvísasta fólkið mætir stundum of seint. Það sem er mikilvægt hjá öllum þessum einstkalingum og öllum þeim sem ná langt á sínu sviði er að þeir dvelja ekki við mistökin og gera ekki sömu mistökin aftur og aftur. Þannig er allt í lagi að detta aðeins úr takt og ná ekki að fylgja nýjum venjum eftir og missa út dag eða tvo. Það sem skiptir máli er að gefast ekki upp heldur taka upp þráðinn þar sem frá var hirfið og byrja aftur. Rannsóknir sýna að það að klikka á venjunni einstaka sinnum hefur ekki áhrif á loka niðurstöðuna. Það er því mikilvægt að slaka á fullkomnunaráráttunni og allt eða ekkert hugsunarhættinum og reyna þess í stað að gera sitt allra besta og vera fljót/ur aftur uppá lappir ef maður hrasar.
Þú ættir ekki endilega að búast við mistökum en það er samt gott að vera undirbúin/nn fyrir þau. Það getur verið gagnlegt að taka sér tíma og velta fyrir sér hvað gæti valdið því ekki takist að framfylgja nýjum venjum, er eitthvað ákveðið sem ber að varast? Hvernig ætla ég að bregðast við ef mér mistkekst? Það sem mestu máli skiptir er að vera vinnusamur og halda áfram, það þarf ekki að vera fullkomin/nn.
Hvernig er gott að byrja:
Notaðu venju sem er nú þegar til staðar hjá þér sem áminningu fyrir nýja venju sem þú villt tileinka þér. Sem dæmi má taka að ef þú villt venja þig á að nota tannþráð er gott að tengja það við venju sem er nú þegar til staðar, til dæmis að bursta tennurnar. Það er væntanlega eitthvað sem þú gerir daglega án þess að hugsa þig um og án þess að vera sérstaklega motivated fyrir því. Það er mikilvægt að nýta slíkar fastmótaðar venjur sem áminningar fyrir þær nýju í stað þess að framkvæma bara nýjar venjur þegar eldmóður fyrir þeim er til staðar. Eldmóður er breytilegur (stundum langar okkur á æfingu, stundum ekki) og því er ekki góð hugmynd að treysta einungis á það ef við viljum skapa okkur venju sem festist í sessi alla daga. Mikilvægt er líka að gera nýju venjuna eins aðgengilega og mögulegt er. Ef við tökum tannþráðinn aftur sem dæmi væri hlgt að vera með tannþráð alltaf hliðina á tannburstanum og tannkreminu þannig að við sjáum hann í hvert sinn sem við burstum tennur og munum þannig frekar eftir að nota hann.
Við skorum á þig að taka út einhverja slæma venju í þínu lífi og/eða skapa þér nýja góða venju í 30 daga. Þetta þarf ekki að vera mjög róttæk breyting því litlar endurteknar breytingar hafa mikil áhrif til lengri tíma.
Skráðu þig á póstlistann eða halaðu niður vinnubókinni okkar um venjur.
Gangi þér vel!
]]>Rannsóknir hafa ítrekað sýnt það að fólk sem setur sér skýr markmið nær meiri árangri í lífinu. Staðreyndir er þó sú að alltof margir setja sér ekki skýr markmið og of mörg markmið renna í sandinn. Ásæðta þess er ekki endielga sú að þau séu óraunhæf heldur er fólk oft að gera ýmis grundvallar mistök í sinni markmiðasetningu. Það eru eflaust margir sem kannast jafnvel við það að setja sér sama áramótaheitið ár eftir ár og raunar sýna rannsóknir fram á að flest áramótaheit klikka áður en janúar líður undir lok.
Þess vegna er mikilvægt að fylgja ákveðnum skrefum í markmiðasetningu til þess að auka líkur á árangri.
Bucket listi
Áður en við byrjum að skrifa niður markmið okkar getur verið gott að gefa sér góðan tíma, hugsa um það hvað það er sem maður virkilega vill gera í lífinu, áfangar sem maður vill ná og hlutir sem manni langar að framkvæma. Til dæmis getur verið góð leið að byrja að skrifa svona “Bucket lista” sem inniheldur 100 atriði sem manni langar að upplifa og framkvæma yfir ævina. Í amstri dagsins gefum við okkur sjaldan rými til þess að hugsa á þennan hátt og margir eru sífellt að fresta draumum sínum þar til hið fullkomna augnablik kemur, en svo bara kemur það ekki og þess vegna verðum við að búa það til. Þegar við erum komin með svona lista þá höfum við góðan leiðarvísi sem við getum síðan unnið áfram með og byrjað að forgangsraða og setja markmiðin upp í rétt skref.
Markmið þurfa að vera sértæk og nákvæm
Það fyrsta sem þarf að hafa í huga er að markmið séu sértæk og nákvæm. Til dæmis er markmiðið “ ég ætla að sinna vinum mínum betur” frekar óljóst markmið sem erfitt getur verið að framfylgja og árangursmæla. Hins vegar ef við tökum markmiðið lengra og gerum það mælanlegt og nákvæmt er mun auðveldara að fylgja því eftir. Til dæmis mætti umorða þetta markmið og segja “ Ég ætla að sinna vinum mínum betur með því að hringja allavega einu sinni í viku í vini mína, hitta þá a.m.k 2x í mánuði og bjóða vinum í mat 4 sinnum á árinu“ Þarna erum við komin með mun skýrara markmið sem auðveldara er að fylgja eftir.
Mikilvægt að hafa markmiðin skrifleg
Þegar við skrifum niður markmiðin okkar er líklegra að við náum þeim. Þau verða raunverulegri fyrir okkur og það verður einhver mögnuð tenging sem á sér stað þegar við skrifum markmið, hugsanir og drauma niður á blað. Það er ekki sama tenging sem á sér stað þegar við skrifum eitthvað inní tölvuna. Það sem við handskrifum festist betur í minni okkar og nær betur til okkar.
Mikilvægt er að búta markmið niður í smærri skref
Ef þú setur þér stór markmiðið getur verið gott að skipta því niður í nokkur minni markmið sem eru viðráðanlegri. Með þessu móti er líklegra að þú gefist ekki upp. Ef þú villt hlaupa maraþon næsta sumar getur markmið fyrir janúar mánuð t.d. verið að ná að hlaupa 10 kílómetra í febrúar 20 kílómetra í mars og svo koll af kolli.
Mikilvægt að fylgjast með árangri og endurskoða markmið
Ein ástæða þess að mörg markmið renna í sandinn er líklega sú að markmiðin eru of víðtæk og jafnvel óraunhæf. Einnig er líklegt að hluti af ástæðunni liggji í því að fólk er ekki að endurskoða markmiðin sín reglubundið og fylgjast með árangri. Markmiðin eru etv sett á áramótum en svo ekki skoðuð aftur fyrr en áramótin þar á eftir og því etv sumir sem eru sífellt að setja sér sömu áramótaheitin ár eftir ár. Við leggjum það til að vera með endurskoðun á sínum markmiðum amk ársfjórðungslega
Ekki gleyma að verðlauna þig þegar þú hefur náð settum markmiðum.
Og svo það sem er e.t.v það allra mikilvægasta er að muna eftir að verðlauna sjálfan sig fyrir góðan árangur. Við eigum það flest til að vilja alltaf ná aðeins lengra, gera aðeins meira og gleymum því þá ef til villa ð staldra við og kláppa okkur á bakið og njóta þess árangurs sem við höfum náð. Þannig getur verið sniðugt að ákveða fyrirfram hvernig við ætlum að verðlauna okkur þegar við náum markmiðum okkar. Þá erum við líka með ákveðna gulrót sem getur virkapð mjög hvetjandi í ferðalaginu sjálfu.
]]>